2017-10-16 11:00:01 CEST

2017-10-16 11:00:01 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 

Í viku 41 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 71.682 eigin hluti að kaupverð 1.232.930 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
10.10.2017 12:20:00 33.550 17,2 577.060
10.10.2017 13:51:23 19.066 17,2 327.935
10.10.2017 13:59:00 19.066 17,2 327.935
Samtals   71.682   1.232.930

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.

Sjóvá átti 59.136.265 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 59.207.947 eigin hluti eða sem nemur 3,97% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 51.126.415 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 3,43% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 900.741.651 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is