2017-10-16 12:46:41 CEST

2017-10-16 12:46:41 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVKN 35 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2017 að efna til útboðs í flokknum RVKN 35 1 miðvikudaginn 18. október. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 1.500 milljónir króna að markaðsvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að breyta útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.

Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 5.770 m.kr. að nafnvirði.

Heimild til lántöku á árinu 2017 er 8.012 m.kr.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 23. október 2017.

Arion banki, Íslandsbanki, Landsbanki og Kvika fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins og hafa einir rétt á tilboðsgerð. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 18. október.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321