|
|||
![]() |
|||
2015-12-21 10:00:31 CET 2015-12-21 10:00:31 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Endurkaupaáætlun Fjarskipta hf. lokiðEndurkaupaáætlun Fjarskipta hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júlí 2015, er lokið og hefur heimild félagsins til kaupa á eigin bréfum verið fullnýtt. Þar með hafa Fjarskipti keypt samtals 8.756.164 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,60% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 399.999.958kr. Tilkynnt var um framkvæmd endurkaupaáætlunar Fjarskipta hf. með tilkynningu til Kauphallar Íslands hf. þann 6. júlí 2015. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins á eigin bréfum nema að hámarki 10.300.000 hlutum eða sem nemur 3,06% af útgefnum hlutum í félaginu, þó ekki meira en 400.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin var í gildi til 31. desember 2015 nema ef kaupum samkvæmt henni yrði lokið áður, sem nú er raunin. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Engar ákvarðanir liggja fyrir um framhald á endurkaupum félagsins á þessari stundu. Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#1975009] |
|||
|