2022-12-01 18:11:24 CET

2022-12-01 18:11:24 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eik fasteignafélag hf.: Útboð á skuldabréfum 2. desember 2022


Eik fasteignafélag hf. efnir til útboðs á nýjum skuldabréfaflokki EIK 25 1 og fer útboðið fram á morgun, föstudaginn 2. desember 2022.

Flokkurinn er óverðtryggður og veðtryggður með tryggingasafni félagsins. Flokkurinn ber fasta 7,67% ársvexti, en greiðslur vaxta fara fram einu sinni á ári. Allur höfuðstóll flokksins greiðist með einni greiðslu á lokagjalddaga hans þann 9. desember 2025. Óskað verður eftir því að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Iceland í kjölfar útgáfu hans.

Útboðið fer fram á föstum kjörum, og verður flokkurinn seldur á pari. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er föstudagurinn 9. desember 2022.

Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Tilboðum skal skilað fyrir klukkan 16:00 á útboðsdegi, þann 2. desember 2022, til Verðbréfamiðlunar Íslandsbanka á netfangið vbm@isb.is. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Nánari upplýsingar veitir:

Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s: 590-2209 / 820-8980.