|
|||
2008-03-05 09:46:08 CET 2008-03-05 09:47:08 CET REGULATED INFORMATION Vinnslustöðin hf. - Fyrirtækjafréttir- 5. mars 2008Vinnslustöðin hf. hefur undirritað samning um kaup á 35% hlutafjár í Ufsabergi-útgerð ehf. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki stjórnar Vinnslustöðvarinnar og fjármögnun. Gangi kaupin í gegn mun Vinnslustöðin taka yfir rekstur skipsins síðar á árinu. Kaupverð hlutafjárins er trúnaðarmál. Ufsaberg-útgerð ehf. rekur togskipið Gullberg VE-292, en skipið var keypt til landsins á vormánuðum 2007. Skipið er öflugt togskip, smíðað í Noregi árið 2000. |
|||
|