2011-08-17 17:45:06 CEST

2011-08-17 17:46:06 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Reitir II - Ársreikningur

Afkoma Reita II á fyrri árshelmingi ársins 2011


Tap Reita II ehf. á fyrri árshelmingi ársins 2011 nam 572 milljónum króna
samanborið við 375 milljón króna tap á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður
félagsins á tímabilinu nam 530 milljónum króna samanborið við 566 milljónir á
sama tímabili í fyrra. 

Horfur fyrir síðari árshelming ársins 2011 eru ágætar en vænta má að
fjármagnsliðir haldi áfram að vera félaginu þungur baggi meðan verðbólga er
mikil. 

Lykiltölur:

  -- Heildareignir námu 21.194 milljónum króna þann 30. júní 2010 og jukust
     lítillega frá árslokum 2010.
  -- Eigið fé félagsins nam 2.649 milljónum króna á sama tíma.
  -- Rekstrartekjur fyrri árshelmings námu 776 milljónum króna samanborið við
     806 milljónir króna á sama tíma árið áður.



Reitir II er í 100% eigu Reita fasteignafélags hf. Félagið á og rekur 18
fasteignir á Íslandi. 

Nánari upplýsingar veitir:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita

Sími 575 9000

einar@reitir.is