|
|||
2014-02-27 17:00:38 CET 2014-02-27 17:01:41 CET REGULATED INFORMATION RARIK ohf. - ÁrsreikningurÁrsreikningur RARIK fyrir árið 2013Hagnaður RARIK á árinu 2013 var 1,9 milljarðar og jókst um 26% á milli ára, en hagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) lækkaði um 10%. Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á árinu 1.947 milljónir króna sem er heldur meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum. Hækkun frá árinu 2012 var rúm 26% en þá var hagnaður ársins 1.541 milljón króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 4.300 milljónir króna eða 36,5% af veltu tímabilsins, samanborið við 38,1% á árinu 2012. Handbært fé frá rekstri var 3.541 milljón króna. Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2013 var 2.684 milljónir króna sem er rúmlega 10% lækkun frá fyrra ári. Talsverð styrking krónunnar gerði það að verkum að þrátt fyrir nokkra verðbólgu varð niðurstaða fjármagnsliða einungis neikvæð um 867 milljónir króna, en á árinu 2012 var niðurstaðan neikvæð um 1.282 milljónir króna. Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 3% frá árinu 2012 og voru 11.793 milljónir króna og rekstrargjöld hækkuðu á milli ára um rúm 8% og voru 9.108 milljónir króna. Hækkun gjalda umfram verðlag má að verulegu leyti rekja til 18% hækkunar á afskriftum. Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um 491 milljón króna á móti 180 milljónum á árinu 2012. Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir RARIK í árslok 46.787 milljónum króna. Heildarskuldir námu 19.643 milljónum króna, eigið fé var 27.144 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall því 58% samanborið við 57,2% í árslok 2012. Ársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Horfur Horfur í rekstri RARIK á árinu 2014 eru góðar, en gert er ráð fyrir að hagnaður ársins verði svipaður og á árinu 2013. Áætlanir ársins 2014 gera ráð fyrir að forgangsorka og dreifing aukist lítillega, sem er í samræmi við þróun undanfarinna ára. Gjaldskrá fyrir dreifingu var hækkuð í upphafi ársins 2014 um 4,5% í dreifbýli en gjaldskrá fyrir alla almenna notkun var óbreytt í þéttbýli. Gera má ráð fyrir að á næstu árum þurfi enn að auka þann mun sem er á gjaldskrám í dreifbýli og þéttbýli. Samkvæmt fjárlögum 2014 áforma stjórnvöld að auka verulega fjármagn til verðjöfnunar milli dreifbýlis og þéttbýlis og þar með jafna þennan mun að mestu á næstu þremur árum. Ný hitaveita var tekin í notkun á árinu á Skagaströnd. Gjaldskrár hitaveitna RARIK breyttust ekki á síðasta ári, en gert er ráð fyrir að gjaldskrár muni fylgja verðlagi á árinu 2014. Orkusalan gerir ráð fyrir að hækka verðskrá sína í samræmi við hækkun Landsvirkjunar á heildsöluverði til Orkusölunnar. Vextir erlendra lána hafa verið hagstæðir undanfarin misseri og gert er ráð fyrir að þeir haldist sambærilegir út árið 2014. Gert er ráð fyrir sambærilegum fjárfestingum í dreifikerfum og á fyrra ári, en minni framkvæmdum í hitaveitum. Fjárfestingar Orkusölunnar verða svipaðar og á síðasta ári. Á síðasta ári var gefinn út skuldabréfaflokkur að upphæð 1.000 milljónir á hagkvæmum kjörum, en á næstu þremur árum er þörf á umtalsverðri endurfjármögnun. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að hve miklu leyti það verður gert á árinu 2014, en það ræðst af aðstæðum á fjármálamarkaði. Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna. Helstu stærðir úr rekstri: jan-des jan-des jan-des jan-de jan-de jan-des s s 2013 2012 2011 2010 2009 2008 Rekstartekjur 11.793 11.412 10.768 9.694 8.703 7.830 Rekstrargjöld 9.108 8.428 8.547 7.907 6.973 6.851 Rekstrarhagnaður 2.684 2.984 2.221 1.787 1.731 979 Fjármunatekjur og -867 -1.282 -1.233 56 -1.804 -5.645 (fjármagnsgjöld) Áhrif hlutdeildarfélags 491 180 189 802 331 -2.877 Hagnaður/tap fyrir skatta 2.309 1.882 1.177 2.646 257 -7.543 Tekjuskattur -362 -341 -164 -127 440 310 Hagnaður (Tap) 1.947 1.541 1.014 2.518 697 -7.232 Eignir samtals 46.787 44.569 37.262 37.032 35.663 31.923 Eigið 27.144 25.507 19.327 18.314 15.982 13.942 fé Skuldir 19.643 19.062 17.935 18.718 19.682 17.982 Handbært fé frá rekstri 3.541 3.257 2.779 2.067 1.847 1.150 Greidd vaxtagjöld 657 630 623 842 749 901 EBITDA 4.300 4.351 3.520 3.054 2.843 1.884 Vaxtaþekja 6,54 6,91 5,65 3,63 3,80 2,09 Eiginfjárhlutfall 58,0% 57,2% 51,9% 49,5% 44,8% 43,7% Ársreikningur RARIK 2013 var samþykktur á fundi stjórnar þann 27. febrúar 2014 og heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll. Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000. |
|||
|