2008-03-14 18:16:32 CET

2011-09-16 12:25:03 CEST


Islandic
Hampiðjan hf. - Niðurstöður aðalfunda

- Niðurstöður aðalfundar haldinn 14. mars 2008


Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 14. mars, var skýrsla stjórnar og
ársreikningur fyrir árið 2007 samþykkt samhljóða. 

Sjálfkjörið var í félagsstjórn.

Formaður félagsstjórnar:
Bragi Hannesson

Meðstjórnendur:
Árni Vilhjálmsson
Jón Guðmann Pétursson
Kristján Loftsson 
Sigurgeir Guðmannsson 

Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar samhljóða:  

1.	Tillaga um greiðslu arðs.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að greiddur verði 10% arður, alls að
fjárhæð kr. 50 milljónir, vegna rekstrarársins 2007.  Arðurinn verði greiddur
út í viku 18.  Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 14.
mars., þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins
á arðsréttindadeginum 19. mars.  Arðleysisdagurinn er 17. mars. 

2.	Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið
ár verði kr. 600.000, formaður taki þrefaldan hlut. 

3.	Tillaga um endurskoðunarfélag.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. kýs PricewaterhouseCoopers hf. endurskoðunarfélag
félagsins. 

4.	Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. veitir stjórn félagsins heimild til þess að kaupa
eigin hluti í félaginu.   Heimild þessi standi í 18 mánuði og takmarkist við að
samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. 
Kaupverð hluta skal vera hæst 15% yfir síðasta þekktu söluverði á First North
markaðinum áður en kaup eru gerð.