2023-06-05 15:50:03 CEST

2023-06-05 15:50:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 32 1 og RVKG 48 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið, í samræmi við útgáfuáætlun 2023, að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKG 48 1 miðvikudaginn 7. júní nk. Heimild til lántöku á árinu 2023 er 21.000 m.kr. Heildarfjármögnun ársins, fyrir þetta útboð, nemur 10.077 m.kr.

RVK 32 1 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem ber fasta 2,5% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. október 2032. Heildarstærð RVK 32 1 fyrir þetta útboð nemur alls 28.183 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr.

RVKG 48 1 er verðtryggður grænn skuldabréfaflokkur sem ber fasta 2,385% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. október 2048. Útgáfa er skv. uppfærðum grænum ramma Reykjavíkurborgar. Heildarstærð RVKG 48 1 fyrir þetta útboð nemur alls 12.240 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 800 m.kr.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 13. júní nk.

Reykjavíkurborg hefur boðið viðskiptavökum, sem eru Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, að hafa umsjón með útboðinu og taka á móti tilboðum í útboðinu. Tilboðum skal skilað inn á netfangið fjarstyring@reykjavik.is fyrir kl. 16:00 á útboðsdegi.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272