|
|||
2017-05-11 14:00:15 CEST 2017-05-11 14:00:15 CEST REGULATED INFORMATION Norðurþing - ÁrsreikningurÁrsreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2016Byggðaráð Norðurþings samþykkti ársreikning Norðurþings og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2016 á fundi sínum 27. apríl 2017. Ársreikningurinn verður lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn Norðurþings þann 2. maí næstkomandi. Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og fer síðari umræða fram þann 16. maí 2017, þar sem staðfesting sveitarstjórnar á ársreikningnum er fyrirhuguð. Komi ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans við afgreiðslu og samþykkt sveitarstjórnar munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun og sveitarstjórn staðfesta ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd. |
|||
|