|
|||
2013-10-30 17:13:58 CET 2013-10-30 17:15:00 CET REGULATED INFORMATION Landsbréf hf. - FyrirtækjafréttirLandsbréf – Útboðslýsing og reglur Landsbréf-LREALMeðfylgjandi eru útboðslýsing og reglur Landsbréfa-LREAL. Landsbréf - LREAL, kt. 681212-9570, er verðbréfasjóður sem starfræktur er í samræmi við ákvæði II. kafla í lögum um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði nr. 128/2011. Sjóðurinn er ennfremur vísitölusjóður sbr. 36 gr. sömu laga. Hlutverk sjóðsins er að veita viðtöku fé til sameiginlegrar fjárfestingar í skuldabréfum sem endurspegla samsetningu NOMXIREAL vísitölunnar (NASDAQ OMX Iceland Inflation-linked Benchmark Bonds), sem NASDAQ OMX á Íslandi reiknar, á grundvelli áhættudreifingar samkvæmt fyrirfram kunngerðri fjárfestingastefnu. Rekstrarfélag sjóðsins í skilningi I. kafla laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði eru Landsbréf hf., kt.: 691208-0520. Félagið er dótturfélag Landsbankans hf. Landsbankinn hf. annast umsjá og varðveislu fjármálagerninga sjóðsins í samræmi við II. kafla C laga nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Endurskoðandi Landsbréfa - LREAL og Landsbréfa hf., rekstrarfélags sjóðsins, er KPMG ehf., 590975-0449, Borgartúni 27, 105 Reykjavík. |
|||
|