|
|||
2010-02-04 06:00:00 CET 2010-02-04 06:02:08 CET REGULATED INFORMATION Össur hf. - ÁrsreikningurÖssur hf. - ársuppgjör 2009Tilkynning frá Össuri hf. nr. 3/2010 Reykjavík, 4. febrúar 2010 * Stöðugur rekstur árið 2009 Helstu atriði á árinu: * Heildarsala 331 milljón Bandaríkjadala * Salan var vaxandi yfir árið * EBITDA hlutfall 20% * Góður árangur í stoðtækjum * Önnur kynslóð af Bionics hátæknivörum kynnt * Sterkara dreifikerfi * Skráning á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn Áætlun 2010: * Söluvöxtur 3-4%, í staðbundinni mynt * EBITDA vöxtur 8-10%, í staðbundinni mynt Jón Sigurðsson, forstjóri:"Niðurstaða ársins er góð og sýnir sterka stöðu félagsins. Á árinu hafa efnahagsþrengingar haft áhrif á viðskiptavini okkar og ákveðna markaði. Engu að síður sýnir Össur góðan rekstur og arðsemi. Tímamót eru í sölu á hátæknivörum okkar vegna nýrrar kynslóðar af hátæknihnénu RHEO KNEE sem og PROPRIO FOOT sem hefur verið samþykktur inn í endurgreiðslukerfin í Bandaríkjunum. Á árinu 2009 höfum við lagt mikla áherslu á að aðlaga spelkuhluta félagsins til að fullnýta möguleika okkar á þeim markaði. Við erum vongóð um að 2010 verði spennandi ár hjá Össuri." Össur hf. kynnir afkomu ársins, fimmtudaginn 4. febrúar kl. 11:00 í Kaupmannahöfn Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn 4. febrúar í Kaupmannahöfn. Fundurinn verður á Radisson Blu Royal Hotel, Hammerichsgade 1, og hefst kl. 11:00 að íslenskum tíma / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku. Sýnt verður beint frá fundinum á netinu, á slóðinniwww.ossur.com/investors<http://www.ossur.com/investors> Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum í síma. Símanúmer fyrir fundinn eru: Ísland:800 9313 Evrópa:+ 44 (0) 207 509 5139 Bandaríkin: +1 718 354 1226 [HUG#1380513] |
|||
|