2009-07-03 15:28:56 CEST

2009-07-03 15:29:53 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
Hf. Eimskipafélag Íslands - Fyrirtækjafréttir

- Hf. Eimskipafélag sýknað af kröfum Baldurs Guðnasonar fyrrum forstjóra félagsins


Eimskip var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknað af kröfu Baldurs Guðnasonar,
fyrrverandi forstjóra þess, um greiðslu launa í tvö ár, allt til loka febrúar
2010. Byggir sýknan á því að Baldur hafi misnotað aðstöðu sína og því beri að
ógilda starfslokasamning við hann. 

Baldur krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur hans gagnvart Eimskip til
óskertra launa, orlofslauna og lífeyrissjóðsframlaga frá 1. maí 2008 til og með
28. febrúar 2010 á grundvelli viðauka við starfssamning. Mánaðarlegar greiðslur
hefðu verið um 56.520 evrur á mánuði, þ.e. laun, orlof og lífeyrisframlag.
Miðað við gengi evru í dag er um 10 milljónir að ræða á mánuði í tæp 2 ár. 

Eimskip byggði sýknukröfu sína m.a. á því að ráðningarsamningi Baldurs hafi
verið rift, að hann hafi beitt svikum við gerð viðauka á starfssamningi, en
einnig var byggt á 33. gr. og 36. gr. samningalaga, þ.e  óheiðarleika og
ósanngirni af hálfu Baldurs. Loks byggði félagið varnir sínar á því að
forsendur fyrir viðauka við ráðningarsamning Baldurs hafi brostið. 

Héraðsdómur féllst á það með Eimskip að Baldur hefði, gegn betri vitund,
misnotað aðstöðu sína og bæri því að ógilda samninginn á grundvelli 30. gr.
laga nr. 7/1936, og féllst á sýknukröfu félagsins.