2014-02-28 10:13:13 CET

2014-02-28 10:14:14 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Spölur ehf. - Ársreikningur

Ársuppgjör 1. janúar 2013 til 31. desember 2013


  -- Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. janúar 2013 til 31.
     desember 2013 nam 355 mkr., hagnaður á rekstrarárinu 1. janúar 2012 til 31.
     desember 2012 nam 238 mkr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á fjórða
     ársfjórðungi félagsins sem er 1. október 2013 til 31. desember 2013 nam 38
     mkr. en á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 9 mkr. Spölur er að
     fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.



  -- Greiðsluflæðið gefur betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna
     vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e.
     2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Um 629 mkr.
     (2012:627 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á tímabilinu og
     nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2013 eins og
     lánasamningar gera ráð fyrir.



  -- Veggjald ársins nam 1.091 mkr. til samanburðar við 1.058 mkr. árið áður sem
     er 3,1 % hækkun.



  -- Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrir tímabilið 1. janúar 2013
     til 31.desember 2013 nam 329 mkr. og lækkar um tæpar 13 mkr frá árinu áður
     þegar hann nam 342 mkr. Skýrist þessi lækkun fyrst og fremst af lækkun á
     tryggingum og aðkeyptri sérfræðiþjónustu.



  -- Afskriftir á árinu námu samtals 120 mkr. og voru á sama tímabili árið áður
     116 mkr.



  -- Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld lækka á milli ára um 47,6 mkr.



  -- Skuldir Spalar ehf lækka úr 3.821 mkr. þann 31. desember 2012 í 3.473 mkr.
     þann 31. desember 2013.



Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu heldur
meiri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir. 
Tímabilið frá 1. janúar 2013 til 31. desember 2013 er fimmtánda fjárhagsár
félagsins. Á þessu tímabili fóru 1.887 þúsund ökutæki um göngin sem greiddu
veggjald sem er um 2,5% aukning frá sama tímabili árið áður. Þessi fjöldi
samsvarar því að um 5.171 ökutæki hafi farið um göngin að meðaltali dag hvern.
Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin hafa hækkað. 

________________________________________________________________________________
_________________ 

Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma
433 5910. 




Lykiltölur úr rekstri Spalar ehf. í þúsundum króna: Sjá fréttatilkynningu