2014-12-01 12:22:02 CET

2014-12-01 12:23:03 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 48. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 423.464 eigin hluti fyrir
11,1 m.kr. eins og hér segir: 

Dagsetning  Tími     Keyptir    Viðskiptav   Kaupverð    Hlutir í eigu TM eftir 
                      hlutir       erð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
24.11.2014  15:21    111.464       25,75     2.870.198         15.706.668       
--------------------------------------------------------------------------------
28.11.2014  15:19    312.000       26,40     8.236.800         16.018.668       
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals              423.464                11.106.998                          
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til
Kauphallar 30. apríl 2014. 

TM hefur nú keypt samtals 16.018.668 hluti í félaginu sem samsvarar 76,3% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 406,7 milljónum króna. TM á nú samtals 2,11%
af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en
31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr.
630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. 



Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is