|
|||
2014-07-28 10:58:23 CEST 2014-07-28 10:59:24 CEST REGULATED INFORMATION Vátryggingafélag Íslands hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup Vís á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.Í 30. viku 2014 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (Vís) 1.500.000 eigin hluti fyrir kr. 12.600.000 eins og hér segir: Dagsetnin Tími Keyptir Viðskiptave Kaupverð Eigin hlutir Vís eftir g hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 21.7.2014 14:19 1.500.000 8,4 12.600.00 20.329.638 0 Samtals 1.500.000 12.600.00 0 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 3. júní 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 16. maí 2014. Vís hefur nú keypt samtals 20.053.114 hluti í félaginu sem samsvarar 36% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 174.117.981. Vís á nú samtals 0,81% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.502.757.040. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 55.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. |
|||
|