|
|||
2008-10-13 12:16:37 CEST 2008-10-13 12:17:37 CEST REGULATED INFORMATION MP Fjárfestingarbanki hf. - Fyrirtækjafréttir- MP Fjárfestingarbanki hf. fær viðskiptabankaleyfiFjármálaeftirlitið hefur veitt MP Fjárfestingarbanka hf. viðskiptabankaleyfi. Ekki er gert ráð fyrir verulegum breytingum á starfsemi bankans á grundvelli hins nýja leyfis. Leyfið gerir bankanum kleyft að taka á móti innlánum á þeim mörkuðum sem bankinn starfar á og mun bankinn þegar hefja viðtöku innlána á Íslandi. Innlán hjá MP Fjárfestingarbanka njóta sömu tryggingar og innstæður hjá öðrum fjármálafyrirtækjum. Um tryggingu innstæðna vísast til yfirlýsingar Ríkisstjórnar Íslands frá 6. október 2008: „Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar 6.10.2008 Ríkisstjórn Íslands áréttar að innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi verða tryggðar að fullu. Með innstæðum er átt við allar innstæður almennra sparifjáreigenda og fyrirtækja sem trygging innstæðudeildar Tryggingasjóðs innstæðueigenda tekur til. Reykjavík 6. október 2008“ Leyfið gildir frá 10. október 2008 og er veitt í fyrstu til 31. desember 2008. MP Fjárfestingarbanki hf. var stofnaður árið 1999 og fékk starfsleyfi sem fjárfestingarbanki árið 2004. Stjórn og forstjóri eru mjög þakklát fyrir það traust sem bankanum er sýnt við þær erfiðu aðstæður sem nú ríkja í íslensku efnahagslífi. Frekari upplýsingar veitir Styrmir Þór Bragason, forstjóri MP Fjárfestingarbanka. Sími +354 540 3200. Nánari upplýsingar um MP Fjárfestingarbanka má finna á heimasíðu bankans, www.mp.is. |
|||
|