|
|||
2013-11-11 16:50:51 CET 2013-11-11 16:51:17 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirUppgjör Vodafone á 3. ársfjórðungi 2013Tekjur hækka og hagnaður eykst * EBITDA hagnaður nam 990 m.kr. og hefur aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi * EBITDA hlutfall tímabilsins nam 28,9% * Hagnaður nam 415 m.kr. og jókst um 192% * Tekjur hækkuðu um 1% frá sama tímabili í fyrra * Handbært fé 1.300 milljónir króna og hefur aldrei verið hærra Ómar Svavarsson, forstjóri:"Þriðji ársfjórðungur ársins 2013 var sérlega góður í rekstri Vodafone. Allar helstu kennitölur rekstrarins eru jákvæðar, hvort sem litið er til tekna, kostnaðar, framlegðarhlutfalls, EBITDA, fjármagnsliða eða hagnaðar. EBITDA hagnaður hefur aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi og hagnaðurinn nærri þrefaldast frá sama tímabili í fyrra. Við erum hæstánægð með þennan árangur, sem er afrakstur markvissrar vinnu starfsfólks Vodafone síðustu misseri. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá tekjurnar vaxa milli ára en um er að ræða viðsnúning sé litið til síðustu ársfjórðunga. Hækkunin á tekjum félagsins skýrist af nokkrum þáttum; markvissri vörusamsetningu og sölu til núverandi viðskiptavina, aukinni gagnamagnsnotkun og auknum tekjum af sjónvarpsþjónustu. Þessi góði árangur verður þó ekki rakinn eingöngu til aðgerða okkar á síðasta ársfjórðungi. Hér er um að ræða afrakstur stefnumarkandi ákvarðana stjórnenda og fjárfestingarverkefna sem átt hafa langan aðdraganda. Niðurstaða fjórðungsins staðfestir þá trú okkar að stefnan hafi verið rétt og að félagið sé á réttri leið. Fjárhagsstaða Vodafone er afar sterk. Eiginfjárhlutfallið hefur aldrei verið hærra, handbært fé hefur aldrei verið meira og skuldsetning félagsins er hófleg. Þrátt fyrir að ákveðin óvissa ríki um ýmsa ytri þætti sem haft geta áhrif á reksturinn þá verður spennandi verkefni að takast á við síðasta fjórðung ársins." Kynningarfundur 12. nóvember 2013: Opinn kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 12. nóvember 2013 í höfuðstöðvum félagsins að Skútuvogi 2. Kynningin hefst kl. 8:30 en boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Vodafone á www.vodafone.is/fjarfestatengsl [HUG#1742226] |
|||
|