2014-08-07 12:33:35 CEST

2014-08-07 12:34:36 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsnet hf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Landsnets hf. fyrir tímabilið janúar-júní 2014


Hagnaður tímabilsins nam 1.231 milljónum króna

Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 1.231 mkr.  fyrstu 6
mánuði ársins 2014 samanborið við hagnað að fjárhæð 1.488 mkr. fyrir sama
tímabil árið 2013.  Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA)
nam 4.446 mkr. samanborið 4.850 mkr. á sama tímabili fyrra árs og lækkar um 404
mkr. á milli ára.  Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 1.565 mkr. á tímabilinu en
voru 1.762 mkr. á sama tímabili ársins 2013. Hrein fjármagnsgjöld lækka því um
197 mkr. á tímabilinu janúar-júní 2014 í samanburði við sama tímabil 2013. 

Eiginfjárhlutfall í lok júní var 21,4% samanborið við 19,9% í lok ársins 2013.
Eigið fé í lok tímabilsins nam 16.678 mkr. samanborið við 15.446 í lok árs
2013. Heildareignir félagsins í lok júní námu 78.076 mkr. samanborið við 77.608
mkr. í lok árs 2013. Heildarskuldir námu 61.398 mkr.  samanborið við 62.162
mkr. í lok árs 2013. 

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í lok júní nam handbært fé 8.718 mkr.
Handbært fé frá rekstri fyrstu 6 mánuði ársins nam 1.612 mkr. 

Árshlutareikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 7. ágúst 2014.

Frekari upplýsingar veitir:
Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang
gudlaugs@landsnet.is