|
|||
![]() |
|||
2015-05-27 18:10:31 CEST 2015-05-27 18:10:58 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA N1 hf. - ÁrsreikningurN1 hf : Afkoma á 1. ársfjórðungi 2015Helstu niðurstöður: * Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) á 1. ársfjórðungi 2015 nam 269 m.kr. samanborið við 120 m.kr. á sama tímabili árið 2014. * Framlegð af vörusölu jókst um 12,8% á 1. ársfjórðungi 2015 miðað við sama tímabil 2014. * Veltuhraði birgða var 10,15 á 1. fjórðungi 2015 (1F 2014: 9,42 ). * Eigið fé var 10.529 m.kr. og eiginfjárhlutfall 45,0% í lok mars 2015. * Arðsemi eiginfjár var 4,9% á ársfjórðungnum (1F 2014: -2,2%). * Á aðalfundi þann 23. mars var samþykkt að greiða út arð að fjárhæð 840 m.kr. * Hreinar vaxtaberandi skuldir voru samtals 1.826 m.kr. í lok mars 2015 en ef tekið er tillit til eignarhluta félagsins í hlutdeildarfélögum þá voru hreinar vaxtaberandi skuldir í lok tímabilsins 335 m.kr. Nánari upplýsingar er að finna í afkomutilkynningu í viðhengi. [HUG#1923957] |
|||
|