|
|||
2014-11-10 10:07:08 CET 2014-11-10 10:08:09 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirReykjavíkurborg - RVK 09 1Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2014 að efna til útboðs í skuldabréfaflokki RVK 09 1 miðvikudaginn 12. nóvember. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að markaðsvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð(hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. Heildarstærð RVK 09 1 fyrir þetta útboð nemur alls 18.040 m.kr. að nafnvirði. Heimild til lántöku á árinu 2014 er 2.180 m.kr. að markaðsvirði. Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 17. nóvember 2014. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Reykjavíkurborgar við Arion banka, Íslandsbanka, Landsbanka, MP Banka og Straum fjárfestingarbanka, hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð. Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðslýsingu í fylgiskjali: Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 |
|||
|