|
|||
2009-05-12 22:18:39 CEST 2009-05-12 22:19:44 CEST REGULATED INFORMATION Atorka Group hf. - FyrirtækjafréttirGjalddagi skuldabréfs 12. maí 2009Í dag 12. maí 2009 er gjalddagi á skuldabréfaflokknum ATOR 07 8 sem ekki verður greiddur. Eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Atorku þann 7. maí sl. hefur félagið ráðið í vinnu PricewaterhouseCoopers í Danmörku til að vinna að heildstæðu mati á virði eignarsafns Atorku og líklegri þróun á eignum félagsins til lengri tíma litið. Ráðgert er að vinnan taki 3-4 vikur og verði lokið í enda maímánaðar. Í kjölfarið mun Atorka kynna hugmyndir að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 540-6200. |
|||
|