|
|||
2013-02-21 15:05:35 CET 2013-02-21 15:06:38 CET REGULATED INFORMATION Landsbréf hf. - ÁrsreikningurÁrsuppgjör 2012Stjórn Landsbréfa hf., sem er rekstrarfélag verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða, hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2012. Í árslok 2012 önnuðust Landsbréf hf. rekstur 20 sjóða um sameiginlega fjárfestingu og nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsbréfa ásamt eignum í stýringu 82,2 milljörðum. Landsbréf keyptu á árinu 2012 allan sjóðarekstur Landsvaka, en bæði félögin eru dótturfélög Landsbankans. Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 7 milljónum króna fyrir árið 2012. Eigið fé Landsbréfa í árslok nam 686 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 78,68% en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0% samkvæmt lögum. Landsbréf bjóða mjög fjölbreytt úrval sjóða. Skuldabréfasjóðir Landsbréfa skiluðu góðri ávöxtun á árinu og var til að mynda sjóðurinn Landsbréf - Sparibréf löng með hæstu ávöxtun allra ríkistryggðra sjóða á Íslandi eða 6,3%. Aðrir skuldabréfasjóðir gáfu einnig góða ávöxtun í samanburði við sambærilegra sjóði hjá samkeppnisaðilum. Innflæði í skuldabréfasjóði félagsins var nokkuð á árinu og stækkuðu þeir um 16%. Hlutabréfasjóðir Landsbréfa stækkuðu á árinu og stækkaði sjóðurinn Landsbréf - Úrvalsbréf til dæmis um 94% prósent. Í lok árs nam hann 6,1 milljarði króna. Landsbréf stofnuðu fjárfestingasjóðinn Landsbréf - Öndvegisbréf undir lok ársins og var hann orðinn 1,3 milljarðar að stærð við árslok. Erlendir hlutabréfamarkaðir skiluðu almennt góðri ávöxtun á árinu 2012 og var verðbréfasjóðurinn Landsbréf - Nordic 40 sá íslenski verðbréfa- eða fjárfestingasjóður sem sýndi besta ávöxtun á árinu 2012 eða 28,3 prósent í ISK. Sá sjóður er vísitölusjóður og fjárfestir eins og nafnið gefur til kynna í hlutabréfum í norrænu vísitölunni N40. Á árinu var mörkuð sú stefna að leggja aukna áherslu á sérhæfðar fjárfestingar og seinni hluta ársins 2012 var unnið að þróun ýmissa verkefna á því sviði. Gert er ráð fyrir að nokkur þeirra verði kynnt sérstaklega á næstu vikum. Úrvinnsla á eignasafni Horns Fjárfestingarfélags hf. er hluti af þessum verkefnum. Eignir í stýringu hjá sérhæfðum fjárfestingum voru í árslok alls 29,4 milljarðar króna. Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa hf. veitir: Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa í síma 410 2511. |
|||
|