2012-06-05 10:47:47 CEST

2012-06-05 10:48:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Landsbankinn selur 2% hlut í Hampiðjunni hf.


Að undangengnu útboði sem lauk í dag, mánudaginn 4. júní 2012, hefur
Landsbankinn selt 10 milljónir hluta að nafnverði í Hampiðjunni hf. á genginu
8,50 kr. á hlut. 

Útboðið fór fram dagana 25. maí til 4. júní 2012 og var fjárfestum boðið að
gera tilboð í að lágmarki 10 milljónir hluta að nafnverði í Hampiðjunni á
lágmarksgenginu 8,00 krónur á hlut. 

Viðskiptadagur er 4. júní 2012 og greiðslu- og afhendingardagur vegna
viðskiptanna er fimmtudagurinn 7. júní 2012. 

Útboðið fór fram í samræmi við útboðsskilmála sem birtir voru í fréttakerfi
NASDAQ OMX á Íslandi þann 24. maí 2012. Í útboðinu var nýtt undanþáguheimild
frá útgáfu lýsingar, í samræmi við heimild í c-lið. 1. töluliðar, 1.
málsgreinar 50. greinar laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti.