|
|||
2016-08-31 20:33:33 CEST 2016-08-31 20:33:33 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirÁrshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins Arion Bank Mortgages Institutional Investor Fund (ABMIIF) árið 2016Fagfjárfestasjóðurinn ABMIIF sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014. -- Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 727 millj. Kr. á árinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum. -- Hrein eign sjóðsins í júnílok 2016 nam 23.797 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. -- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2016, efnahagi hans 30. júní 2016 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2016, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is Nánari upplýsingar um árshlutareikning ABMIIF veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7464. |
|||
|