2010-03-08 17:15:52 CET

2010-03-08 17:16:53 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 10 0715


Fimmtudaginn 11. mars kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokki RIKV 10 0715 sem er með gjalddaga 15. júlí 2010. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt
að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 15. mars 2010.

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi
þriðjudaginn 16. mars 2010. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.