|
|||
![]() |
|||
2015-02-19 12:17:58 CET 2015-02-19 12:18:59 CET Vátryggingafélag Íslands hf. - FjárhagsdagatalBirting ársreiknings 2014 og kynningarfundur þann 26. febrúar næstkomandi.Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta ársreikning 2014, fimmtudaginn 26. febrúar næstkomandi eftir lokun markaðar. Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins verður haldinn sama dag, þann 26. febrúar, í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð, kl. 16:15. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti frá kl. 16:00. Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum. Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins: http://vis.is/fjarfestar |
|||
|