2015-02-19 12:36:39 CET

2015-02-19 12:37:40 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsnet hf. - Ársreikningur

Ársreikningur Landsnets hf. fyrir árið 2014


Lægri ársverðbólga skýrir góða rekstrarniðurstöðu




Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 6.174 mkr. samanborið við 6.568
mkr. á fyrra ári og lækkar því um 394 mkr. á milli ára. Lækkun á
rekstrarhagnaði fyrir fjármagnsliði skýrist meðal annars af lægra meðalgengi
dollars en um 60% af tekjum félagsins er í þeirri mynt. Þá hafði hærra verð á
aðkeyptri orku vegna flutningstapa í kerfinu nokkur áhrif auk þess sem
rekstrarkostnaður hækkaði vegna aukinna umsvifa. 

Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 3.762 mkr. fyrir árið
2014 samanborið við 2.183 mkr. hagnað á árinu 2013. Aukinn hagnaður skýrist
fyrst og fremst af lægri fjármagnsliðum en hrein fjármagnsgjöld námu samtals
1.519 mkr. á árinu 2014 á móti 3.870 mkr. á árinu 2013 og lækka um 2.351 mkr. á
milli ára. Að stórum hluta liggur ástæðan í lægri verðbólgu á árinu 2014 en
verðbólga ársins mældist aðeins um 1%. Stærsti hluti lánasafns félagsins er í
íslenskum krónum og hefur því þróun verðbólgu veruleg áhrif á
rekstrarniðurstöðu félagsins á hverjum tíma. Viðsnúningur í gengisþróun hafði
einnig nokkur áhrif og varð gengishagnaður á árinu um 982 mkr. á móti 329 mkr.
gengistapi á árinu 2013. 

Fjárfestingar voru nokkuð lægri á árinu en á fyrra ári og numu um 3.851 mkr.
samanborið við 6.408 mkr. árið áður. Helstu fjárfestingar ársins voru bygging
nýs tengivirkis á Ísafirði og varaaflsstöðvar á Bolungarvík, en báðar þessar
fjárfestingar eru til að auka áreiðanleika afhendingar raforku í
flutningskerfinu á Vestfjörðum. Frekari áform um fjárfestingar á árinu
frestuðust vegna þess að leyfi fengust ekki fyrir þeim vegna ágreinings sem er
um útfærslur. 

Eiginfjárhlutfall í árslok var 23,5% samanborið við 19,9% í lok fyrra árs.
Eigið fé í árslok nam 19.208 mkr. samanborið við 15.446 í lok árs 2013.
Heildareignir félagsins í árslok námu 81.859 mkr. samanborið við 77.608 mkr. í
lok fyrra árs. Heildarskuldir námu 62.651 mkr. samanborið við 62.162 mkr. í lok
fyrra árs. 

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í árslok nam handbært fé 12.235 mkr.
Handbært fé frá rekstri nam 6.231 mkr. árið 2014 samanborið við 7.733 mkr. árið
2013. 

Rekstrarniðurstaða ársins er betri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir og
liggur það nær eingöngu í jákvæðari niðurstöðu fjármagnsliða. Rekstrarhæfi
félagsins er mjög gott. Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 mun handbært fé
standa undir fjárfestingum og afborgunum lána. 

Ársreikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 19. febrúar 2015.



Helstu niðurstöður rekstrarreiknings, lykiltölur efnahagsreiknings og
kennitölur: Sjá viðhengi 




Frekari upplýsingar veitir:

Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang
gudlaugs@landsnet.is.