2016-08-29 01:20:27 CEST

2016-08-29 01:20:27 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Jakob Sigurðsson ráðinn forstjóri VÍS


Stjórn VÍS og Sigrún Ragna Ólafsóttir, forstjóri félagsins, komust í dag að
samkomulagi um að hún láti af störfum hjá félaginu. Stjórnin hefur ákveðið að
ráða Jakob Sigurðsson forstjóra VÍS. Hann er með B.S. gráðu í efnafræði frá
Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Kellogg stjórnunarskólanum við
Northwestern-háskóla í Illinois í Bandaríkjunum. Hann starfaði sem forstjóri
Promens á árunum 2011-2015, var framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Íslenskrar
erfðagreiningar frá 2006-2011 og framkvæmdastjóri Alfesca, áður SÍF, frá
2004-2006. Hann gegndi áður stjórnunarstöðum hjá alþjóðlega efnafyrirtækinu
Rohm and Haas í Bandaríkjunum og í Evrópu. 

Herdís Fjeldsted, formaður stjórnar VÍS: „Við erum afar ánægð með að hafa
fengið Jakob til að taka við stjórnartaumunum hjá VÍS. Hann hefur mikla og
fjölþætta stjórnunarreynslu sem mun nýtast VÍS vel í þeim verkefnum sem
framundan eru.  Vátryggingamarkaðurinn er í mikilli gerjun og reynsla Jakobs af
því að móta og framfylgja skýrri framtíðarsýn og byggja upp sterka liðsheild,
mun koma viðskiptavinum félagsins til góða á komandi mánuðum og misserum.
Sigrún Ragna tók við félaginu fyrir fimm árum á miklum umbrotatímum og leiddi
það meðal annars í gegnum skráningu á almennan hlutabréfamarkað. Ég vil fyrir
hönd stjórnar þakka henni fyrir góð störf í þágu VÍS.“ 

Jakob Sigurðsson, forstjóri VÍS: „Það er mjög spennandi að taka við VÍS á
þessum tímapunkti. Félagið hefur góða stöðu á markaði og öflugt net
þjónustustaða um allt land sem er mikill styrkur fyrir fyrirtækið.
Tryggingafélag er í nánu sambandi við viðskiptavini sína, þjónustan snýst um
fólk og að vera til staðar þegar eitthvað bjátar á. Mér finnst það mjög
áhugaverður vettvangur og ég hlakka til að kynnast starfsfólki VÍS og
viðskiptavinum á næstu dögum og vikum.“ 

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, fráfarandi forstjóri VÍS: „Ég kveð VÍS eftir
viðburðarík fimm ár þar sem unnið hefur verið að mörgum stórum verkefnum sem
hafa styrkt stöðu félagsins til framtíðar. Ég er stolt af þeim árangri sem
náðst hefur  á þessum tíma og vil þakka starfsfólki og viðskiptavinum fyrir
samstarfið og samfylgdina. Ég óska þeim og VÍS velfarnaðar í framtíðinni.“ 



Frekari upplýsingar:

Herdís Fjeldsted, formaður stjórnar VÍS. Sími 560 5179.