|
|||
![]() |
|||
2016-05-10 23:45:01 CEST 2016-05-10 23:45:01 CEST REGULATED INFORMATION HS Orka hf. - ÁrsreikningurHS Orka hf. birtir árshlutareikning fyrir fyrsta ársfjórðung 2016Fréttatilkynning Reykjanesbær, 10. maí 2016 HS Orka hf. birtir árshlutareikning fyrir fyrsta ársfjórðung 2016 Stjórn HS Orku hf. samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2016. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi: Hagnaður tímabilsins nam 465 milljónum en á sama tímabili 2015 var tap af rekstri 321 milljón. Rekstartekjur námu 1.863 milljónum (Q1 2015: 2.076 milljónir) Helsta skýring á lækkun rekstrartekna er lækkun álverðs og minni sala rafmagns til fiskimjölsverksmiðja vegna lakrar loðnuvertíðar. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 189 m.kr. en voru neikvæðir um 1.018 m.kr. á sama tímabili árið 2015. Hækkun á virði afleiða (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) er 194 m.kr. á árinu en lækkaði einnig um 604 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2015. Áhrif gengisbreytinga voru jákvæð um 82 m.kr. en voru neikvæð um 388 m.kr. á sama tímabili 2015. Heildarhagnaður nam 450 milljónum á fyrsta ársfjórðungi 2016 samanborið við tap upp á 374 milljónir á fyrsta fjórðungi ársins 2015. Eiginfjárhlutfall 31. mars 2016 er áfram mjög hátt eða 60,2% en var í árslok 2015 58,6%. Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hf. í síma 855 9301. |
|||
|