|
|||
2014-11-17 10:31:04 CET 2014-11-17 10:32:05 CET REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.Í 46. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 95.204 eigin hluti fyrir 2,3 m.kr. eins og hér segir: Dagsetning Tími Keyptir Viðskiptave Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 12.11.2014 15:04 95.204 24,50 2.332.498 15.595.204 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 95.204 2.332.498 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014. TM hefur nú keypt samtals 15.595.204 hluti í félaginu sem samsvarar 74,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 395,6 milljónum króna. TM á nú samtals 2,05% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson, forstjóri s: 515-2609 sigurdur@tm.is |
|||
|