2010-02-22 11:02:21 CET

2010-02-22 11:03:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Niðurstöður hluthafafunda

Niðurstöður aðalfundar, sem haldinn var 19. febrúar 2010


Niðurstöður aðalfundar Nýherja, sem haldinn var í ráðstefnusal félagsins að
Borgartúni 37, kl. 16.00, þann 19. febrúar  2010: 

1.  Ársreikningur félagsins var lagður fram og samþykktur samhljóða.

2.  Samþykkt var tillaga stjórnar að ekki verði greiddur arður vegna
    rekstrarársins 2009. 

3.  Samþykkt var tillaga um stjórnarlaun fyrir starfsárið 2009: Stjórnarformaður
    kr. 2.550.000, stjórnarmenn kr. 850.000 og varamaður kr. 63.000 fyrir hvern
    fund. 
4.  Samþykkt var eftirfarandi breyting á grein 2.1. samþykkta félagins. Í lok
    greinarinnar komi svohljóðandi bráðabirgðaákvæði: 

    Stjórn félagsins er heimilt sbr. 41. gr. hlutafélagalaga, að auka hlutafé
    félagsins um allt að kr. 120 millj. með sölu nýrra hluta. Falla núverandi
    hluthafar frá forkaupsrétti sínum til kaupa á hlutum þessum. Stjórn
    félagsins ákveður útboðsgengi bréfanna og sölureglur hverju sinni. Skal
    áskrift fara fram samkvæmt ákvæðum samþykkta félagsins og V. kafla
    hlutafélagalaga. Engar hömlur skulu vera á viðskiptum með hina nýju hluti. 
    Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi
    hlutafjárhækkunarinnar. Heimild þessa getur stjórn Nýherja nýtt innan
    þriggja ára frá samþykkt hennar 

5.  Samþykkt var heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa allt að 10% af
    nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um
    hlutafélög. Kaupgengi hluta má ekki vera meira en 20% hærra eða lægra en
    síðasta skráða gengi á Kauphöll Íslands. Gildistími heimildarinnar er allt
    að átján mánuðir. 

6.  Samþykkt var að eftirtaldir skipi stjórn fyrir næsta starfsár: Benedikt
    Jóhannesson, Árni Vilhjálmsson og Guðmundur Jóh. Jónsson. Samþykkt var að
    varamaður verði Jafet S. Ólafsson.  	 

7.  Samþykkt var að endurskoðendur félagsins verði KPMG Endurskoðun hf.


Ný stjórn skipti með sér verkum á stjórnarfundi, sem haldinn var í framhaldi
aðalfundar.  Benedikt Jóhannesson gegnir stöðu stjórnarformanns. Árni
Vilhjálmsson var kjörinn varaformaður.



Meðfylgjandi er ræða formanns í viðhengi.