|
|||
2011-11-17 15:19:59 CET 2011-11-17 15:21:02 CET REGULATED INFORMATION Fljótsdalshérað - FyrirtækjafréttirFjárhagsáætlun 2012 - 2015Seinni umræða um fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 var samþykkt af bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs miðvikudaginn 16. nóv.. 2011. Jafnframt var afgreidd í seinni umræðu 3ja ára áætlun fyrir árin 2013 - 2015 Helstu viðmið fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs eru: -- Jafnvægi skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og gjalda A- og B-hluta á hverju þriggja ára tímabili. -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður afgangur af rekstri bæði A- og B- hluta á árinu. -- Framlegð rekstrar (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera á bilinu 15 - 20% -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður framlegðarhlutfall A-hluta 21% og í samstæðu A og B hluta 25%. -- Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur afborgunum og vöxtum af langtímalánum -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 mun veltufé frá rekstri nema 479 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 415 millj. kr. í samstæðu A og B hluta. Í A hluta nemur veltufé frá rekstri um 347 millj. kr. en greiðslur vegna skuldbindinga nema um 328 millj. kr. . -- Skuldir og skuldbindingar samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af skilgreindum tekjum. -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012 verður skuldahlutfall A-hluta 215% og samstæðu A og B hluta um 250%. -- Árið 2015 verður skuldahlutfall A hluta um 197% og í samstæðu A og B hluta er áætlað að skuldahlutfallið nemi um 223%. Inni í skuldbindingum sveitarfélagsins eru kaup á fasteignum ríkisins vegna málefna fatlaðra að fárhæð 122 millj. kr. sem væntanlega verður gengið frá á árinu 2011 og síðan er í fjárhagsáætlun gert ráð fyrir að farið verði af stað með byggingu á hjúkrunarheimili og verði á árunum 2012 og 2013 varið 1.000 millj. kr. til þess verkefnis. Í báðum þessum verkefnum koma framlög á móti frá ríkisvaldinu á næstu árum til að mæta stofnkostnaði. Bygging hjúkrunarheimilisins er löngu orðin tímabær og vonir standa til þess að hægt verði að koma verkefninu í formlegan farveg fljótlega á næsta ári og búa öldruðum þar með þá umgjörð sem þeim ber og efla í leiðinni atvinnustigið á svæðinu og rekstur HSA. Skuldbindingar án HEF (veitustofnanir) nema 228% af heildartekjum í árslok 2012 og verða komnar í 208% í árslok 2015. Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri |
|||
|