|
|||
![]() |
|||
2014-08-18 00:04:49 CEST 2014-08-18 00:05:29 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA N1 hf. - HluthafafundirN1 hf :Framboð til stjórnarHluthafafundur N1 hf. verður haldinn miðvikudaginn 20. ágúst 2014, kl. 16:00, Dalvegi 10 - 14, Kópavogi. Á dagskrá fundarins er m.a. kjör eins aðalstjórnarmanns af fimm í stjórn félagsins og kjör tveggja varastjórnarmanna að því gefnu að ekki verði samþykkt tillaga stjórnar á fundinum um að fella niður ákvæði um varastjórnarmenn í samþykktum félagsins, sbr. skýringar í upphaflegu fundarboði fundarins. Framboðsfrestur til aðal- og varastjórnar rann út síðdegis sl. föstudag. Framboð bárust frá eftirgreindum einstaklingum til aðalstjórnar: 1. Helga Björk Eiríksdóttir, kennitala: 221268-3939 2. Jón Sigurðsson, kennitala: 180378-4219 Engin framboð bárust til varastjórnar. Framboð beggja einstaklinganna til aðalstjórnar hafa verið metin gild. Á fundinum fer því fram kosning á milli þeirra um hvort þeirra verður nýr aðalmaður í stjórn N1 hf. Framboði Jóns Sigurðssonar fylgdi meðfylgjandi bréf sem skýrir sig sjálft. Stjórn N1 hf. [HUG#1849319] |
|||
|