2017-11-09 09:30:00 CET

2017-11-09 09:30:41 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Islandsbanki hf.: Afkoma fyrstu 9 mánaða ársins 2017


Helstu atriði í afkomu 9M2017:

  * Hagnaður eftir skatta var 10,1 ma.kr. samanborið við 15,6 ma. kr. á 9M16.
    Þessi munur skýrist aðallega af einskiptishagnaði af sölu Borgunar á hlutum
    í Visa Europe er átti sér stað á 9M16.  Arðsemi eigin fjár var 7,7% á
    tímabilinu samanborið við 10,3% á 9M16.
  * Hagnaður af reglulegri starfsemi var 10,2 ma. kr. samanborið við 11,3 ma kr.
    á sama tíma 2016.
  * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárhlutfall
    þáttar 1 (CET1) var 10,1% á 9M17 samanborið við 10,4% á 9M16.
  * Hreinar vaxtatekjur voru 22,7 ma. kr. (9M16: 23,7 ma. kr.) sem er 4% lækkun
    milli tímabila sem skýrist af lægra vaxtaumhverfi. Vaxtamunur var 2,9%
    (9M16: 3,0%).
  * Hreinar þóknanatekjur voru 10,1 ma. kr.samanborið við 9,9 ma. kr. á 9M16,
    sem er 2% hækkun milli tímabila.
  * Stjórnunarkostnaður var 19,3 ma. kr. sem er 2% lækkun frá 9M16. Þegar
    einskiptiskostnaður er undanskilinn hækkar kostnaður um 2,7%, sem þýðir
    raunhækkun um 1,0% sé tillit tekið til verðbólgu.
  * Kostnaðarhlutfall var 60,2% (9M16: 55,9%), en sértækur bankaskattur og
    einskiptiskostnaður eru undanskildir við útreikning kostnaðarhlutfalls.
  * Heildar eignir voru 1,078 ma. kr. (júní17: 1,047 ma. kr.).  Útlán til
    viðskiptavina og lausafjársafn bankans voru samtals 96% af stærð
    efnahagsreiknings við lok tímabilsins.
  * Útlán til viðskiptavina jukust um 7,8% (53,5 ma. kr.) á 9M17 og voru 741 ma.
    kr. í lok tímabilsins. Ný útlán voru 152 ma. kr. sem dreifðust vel á milli
    viðskiptaeininga bankans.
  * Gæði eignasafns bankans halda áfram að batna, en hlutfall lána í vanskilum
    umfram 90 daga  var 1,1% (júní17: 1,2%, mars17: 1,6% og des16: 1,8%).
  * Innlán frá viðskiptavinum lækkuðu í línu við væntingar  um 1,2% (7,3 ma.
    kr.) á 9M17 og voru 587 ma. kr. við lok tímabilsins.
  * Eiginfjárhlutfall var 22,7% og eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) var 22,5%
    við lok tímabilsins, samanborið við 23,5% og 23,3% við lok júní 2017.
  * Lausafjárstaða bankans er sterk og umfram kröfur eftirlitsaðila og innri
    viðmið. Við lok tímabilsins var lausafjárhlutfallið (LCR) 183% (júní17:
    171%) og fjármögnunarhlutfallið (NSFR) var 115% (júní17: 119%).
  * Vogunarhlutfall var 15,3% við lok september 2017, samanborið við 15,7% við
    lok júní, sem telst hóflegt bæði í innlendum og erlendum samanburði.
  * Íslandsbanki er eini bankinn á Íslandi með lánshæfismat frá tveimur
    alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum. Í janúar 2017 hækkaði Fitch Ratings
    mat sitt í BBB/F3 með stöðugum horfum og í október 2017 hækkaði Standard &
    Poor's (S&P) mat sitt í BBB+/A-2 með stöðugum horfum.



Helstu atriði á 3F2017:

  * Hagnaður eftir skatta var 2,1 ma. kr. (3F16: 2,5 ma. kr.). Arðsemi eigin
    fjár var 4,7% á tímabilinu samanborið við 5,1% á 3F16.
  * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárhlutfall
    þáttar 1 (CET1) var 8,1% á fjórðungnum (3F16: 8,4%).
  * Hreinar vaxtatekjur voru 7,5 ma. kr. á 3F17 (3F16: 7,8 ma. kr.) og
    vaxtamunurinn var 2,8% (3F16: 3,0%).
  * Hreinar þóknanatekjur voru 3,3 ma. kr. (3F16: 3,2 ma. kr.).

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:
"Útlánavöxtur frá áramótum nemur 7,8% en sá vöxtur skýrist einkum af aukningu á
lánum til fyrirtækja. Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að taka þátt í
fjölbreyttum fjárfestingum íslenskra fyrirtækja.  Góður gangur var í miðlun
verðbréfa á þriðja ársfjórðungi og var bankinn með mestu hlutdeild á
skuldabréfamarkaði. Jafnframt hefur hlutdeild bankans á hlutabréfamarkaði vaxið.

Hagnaður af rekstri bankans nam 10,1 milljarði á fyrstu 9 mánuðum ársins og
nemur arðsemi af undirliggjandi rekstri 10,1%. Þetta er í samræmi við markmið
bankans. Jákvæð virðisbreyting útlána hefur mikil áhrif á arðsemina og eru gæði
lánasafnsins enn að batna.

Nýlega var lánshæfismat Íslandsbanka hækkað af S&P Global Ratings sem ýtir undir
þá jákvæðu þróun sem hefur átt sér stað í íslensku efnahagslífi. Kjör bankans á
erlendum fjármagnsmörkuðum hafa farið batnandi síðustu misseri og  erum við nú
mun samkeppnishæfari í kjörum við erlenda banka. Við fögnum þessari þróun og
hlökkum til áframhaldandi verkefna með viðskiptavinum okkar.

Flutningum í nýjar höfuðstöðvar bankans í Norðurturni er nú lokið og við sjáum
strax  árangur aukinnar samvinnu og samþéttingar. Verkefnamiðuð vinnuaðstaða er
að gefast vel og hafa þegar tugir íslenskra fyrirtækja heimsótt okkur til að
kynna sér þessa framúrstefnulegu vinnuaðstöðu.

Framundan eru miklar breytingar á alþjóðlegum fjármálamarkaði þar sem innleiddar
verða nýjar reglugerðir sem opna markaðinn enn frekar fyrir neytendur. Við erum
á lokasprettinum að gera breytingar á grunnkerfum bankans sem gerir okkur enn
betur kleift að takast á við spennandi áskoranir framundan".



FJÁRFESTATENGSL

Símafundur á ensku kl. 13:00

Markaðsaðilum er boðið upp á símafund kl. 13:00 í dag fimmtudaginn 9. nóvember.
Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans.
Vinsamlegt skráið ykkur á símafundinn með því að senda tölvupóst á
ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna fundarins verða send út til
skráðra aðila tveimur tímum fyrir fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjármálastjóri - Jón Guðni Ómarsson, jon.omarsson@islandsbanki.is, og í síma
    440 4000.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir,
    edda.hermannsdottir@islandsbanki.is, og í síma 440 4005.

Viðhengi:


[]