2008-10-21 13:17:08 CEST

2008-10-21 13:18:08 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
VBS Fjárfestingarbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

- Vegna frétta í fjölmiðlum af endurhverfum viðskiptum


VBS fjárfestingarbanki hf (VBS) hefur átt endurhverf viðskipti af tvennum toga:

 Annars vegar á grundvelli skuldabréfs að fjárhæð kr. 15.000.000.000 sem gefið
var út af Landsbanka Íslands hf.  Í samningi milli VBS og Landsbanka Íslands
hf. um kaup bréfsins er sérstakt ákvæði sem heimilar VBS að skuldajafna milli
aðila. VBS hefur fyrir nokkru sent tilkynningu til Landsbanka  þar sem lýst er
yfir skuldajöfnun, en skuld VBS við Landsbanka Íslands hf. var hærri á
skuldajöfnunardegi en skuld Landsbankans við VBS skv. framangreindu
skuldabréfi. 

Hins vegar á grundvelli skuldabréfs útgefnu af Kaupþingi banka hf. að fjárhæð
125.000.000 USD sem sá síðarnefndi lánaði VBS gegn tryggingu í reiðufé og víxli
útgefnum af VBS. VBS hefur nú, í ljósi breytinga á frádragi af umræddu bréfi í
veðlánum við Seðlabanka, óskað eftir því að Kaupþing skili umræddu skuldabréfi
gegn afhendingu þeirra trygginga sem VBS lét af hendi. Þetta er heimilt með
eins dags fyrirvara skv. samningi þeim sem gerður var um lánið á bréfinu. Ekki
var um eiginleg kaup VBS að ræða á framangreindu skuldabréfi útgefnu af
Kaupþingi banka hf. og er krafa VBS því eingöngu um skil á tryggingum. 

Verði staðið við gerða samninga er eigið fé VBS ekki í hættu vegna þessa. En
vanefndir á samningnum af hálfu mótaðila VBS hefðu neikvæð áhrif á
fjárhagsstöðu félagsins.