|
|||
2016-04-29 10:34:57 CEST 2016-04-29 10:34:57 CEST REGULATED INFORMATION Vopnafjarðarhreppur - ÁrsreikningurVopnafjarðarhreppur ársreikningur 2015Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2015 var lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps fimmtudaginn 28. apríl 2016. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður ársreikninginn tekinn til umræðu í sveitarstjórn fyrir 15. maí nk. Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps árið 2015 hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A-hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, þ.e. A- og B-hluta, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða Aðalsjóð, en auk hans Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B-hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir, Leiguíbúðir aldraðra, Legudeildin Sundabúð, Lyfsala, Skiphólmi ehf. og Arnarvatn ehf Helstu niðurstöður ársreiknings 2015 eru eftirfarandi: -- Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta á árinu var jákvæð um 46 millj. kr., en niðurstaða A-hluta var neikvæð um 49 millj. kr. -- Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nam 120 millj. kr., en 48 millj. kr. í A-hluta. -- Skuldir og skuldbindingar A- og B-hluta námu 608 millj. kr. í árslok 2015, en 545 millj. kr. í A-hluta. -- Eigið fé A- og B-hluta nam um 808 millj. kr. í árslok en eigið fé A-hluta nam um 568 millj. kr. -- Skuldahlutfall A- og B-hluta, skv. skilgreiningu í reglugerð um fjárhagsleg viðmið nr. 502/2012, nemur 65,1% í árslok 2015, en þetta hlutfall var 72,3% í árslok 2014. -- Skuldaviðmið A- og B-hluta, skv. sömu reglugerð, nemur 62,5% í árslok 2015, en þetta hlutfall var 70,5% í árslok 2015. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum og ofangreindri reglugerð þá skulu þessi hlutföll ekki var hærri en 150%. -- Þá skulu samanlögð heildarútgjöld til rekstrar vegna A- og B-hluta ekki vera hærri en sem nemur samanlögðum reglulegum tekjum á hverju þriggja ára tímabili. Rekstrarjöfnuður Vopnafjarðarhrepps fyrir A- og B-hluta hefur verið jákvæður undanfarin ár og verður jákvæður áfram gangi fyrirliggjandi áætlanir sveitarfélagsins eftir. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri. |
|||
|