|
|||
![]() |
|||
2016-06-15 18:46:18 CEST 2016-06-15 18:46:18 CEST SÄÄNNELTY TIETO Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 2.680 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 980 m. kr. Seld voru skuldabréf í LBANK CBI 22, verðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 980 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,35%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 14.520 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 15.500 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Engum tilboðum var tekið í óverðtryggða flokkinn LBANK CB 19. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 22. júní 2016 en Kvika sinnir viðskiptavakt með ofangreinda flokka sértryggðra skuldabréfa. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [HUG#2021001] |
|||
|