|
|||
![]() |
|||
2016-12-22 11:07:03 CET 2016-12-22 11:07:03 CET SÄÄNNELTY TIETO Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga - niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboðiLánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS151155 og LSS150434 þann 21. desember 2016. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 23. desember 2016. Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 2.800.000.000 á bilinu 2,94% - 3,14% í útboðinu. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.050.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,99%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS151155 fyrir ISK 450.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,99% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Ekki bárust tilboð í viðbótarútgáfu í flokki LSS150434. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 1.500.000.000 í LSS151155. Heildarstærð flokksins er nú ISK 3.617.000.000. Nánari upplýsingar veitir: Örvar Þór Ólafsson Sími: 515 4947 e-mail: orvar@lanasjodur.is |
|||
|