2015-04-21 11:06:59 CEST

2015-04-21 11:07:28 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf.: Sölugengi 6,80 krónur á hlut í útboði Eikar fasteignafélags


  * Sölugengi 6,80 krónur á hlut
  * 485 milljónir hluta seldir í útboðinu
  * Söluandvirði nemur um 3,3 milljörðum króna
  * Um 2.100 fjárfestar óskuðu eftir að kaupa hlutabréf í Eik fasteignafélagi
  * Heildareftirspurn í útboðinu nam 8,3 milljörðum króna
  * Markaðsvirði hlutafjár Eikar fasteignafélags nemur um 23,6 milljörðum króna
  * Eindagi greiðsluseðla er 27. apríl 2015
  * Hlutabréf Eikar fasteignafélags verða skráð á Aðallista Nasdaq Iceland 29.
    apríl 2015



Vel heppnuðu hlutafjárútboði í Eik fasteignafélagi hf. lauk í gær þann 20. apríl
þar  sem um  2.100 fjárfestar óskuðu  eftir að  kaupa hlutabréf fyrir samtals um
8,3 milljarða  króna. Í útboðinu  bauð Arion banki  til sölu 485 milljónir hluta
eða  samtals  14,0% hlutafjár  í  félaginu  í  gegnum tvær tilboðsbækur, A og B.
Heildarsöluandvirði útboðsins nemur 3,3 milljörðum króna á genginu 6,80 krónur á
hlut. Markaðsvirði hlutafjár Eikar fasteignafélags er 23,6 milljarðar



Samtals  fengu um 1.200 fjárfestar úthlutað í báðum tilboðsbókum á genginu 6,80
krónur  á hlut. Fjárfestum í tilboðsbók A  verður úthlutað um 55% af áskrift, en
þó  þannig  að  áskriftir  verða  ekki  skertar undir 500 þúsund krónur og lægri
fjárhæðir standa óskertar. Áskriftir sem bárust á genginu 6,80 krónur á hlut eða
hærra í tilboðsbók B verða óskertar.



Fjárfestum  verða sendar upplýsingar um  úthlutun ásamt greiðslufyrirmælum eftir
að  Kauphöll Íslands  hefur staðfest  að hlutir  í Eik fasteignafélagi hf. verði
teknir  til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Gert er ráð fyrir að eindagi
greiðsluseðla  vegna  útboðsins  verði  27. apríl næstkomandi. Fyrirtækjaráðgjöf
fjárfestingarbankasviðs  Arion banka  hefur umsjón  með útboðinu og fyrirhugaðri
skráningu   félagsins  í  Kauphöll  en  áætlað  er  að  miðvikudaginn  29. apríl
næstkomandi geti viðskipti hafist með hluti í Eik fasteignafélagi á Aðalmarkaði.



Heildarhlutafé Eikar fasteignafélags er 3.465.180.435 og er hver hlutur 1 kr. að
nafnverði. Eik fasteignafélag á sjálft 8.800.000 hluti í félaginu.



Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags:"Við  þökkum það traust  sem fjárfestar sýna  félaginu sem fjárfestingarkosti og
bjóðum nýja hluthafa velkomna. Eik fasteignafélag hefur vaxið á undanförnum árum
með fjárfestingum í vel staðsettum eignum og markar skráning á Aðalmarkað Nasdaq
Iceland  mikil tímamót fyrir  félagið. Það verður  spennandi að takast  á við ný
verkefni með breiðari hópi hluthafa."



Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:"Það er ánægjulegt hvað útboð Eikar fasteignafélags gekk vel. Eik fasteignafélag
er  eitt  af  stærstu  fasteignafélögum  landsins  og  verður  góð  viðbót inn á
hlutabréfamarkaðinn. Skráning Eikar fasteignafélags á markað er önnur skráningin
sem  Arion  banki  hefur  umsjón  með  á  árinu, en bankinn hefur séð um rúmlega
helming  allra skráninga á hlutabréfamarkað frá árinu 2009. Það skiptir miklu að
hlutabréfamarkaðurinn  haldi  áfram  að  vaxa  og  að fjárfestum bjóðist stöðugt
fleiri fjárfestingarkostir."



Nánari upplýsingar veita

Halldór Bjarkar Lúðvígsson, framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion
banka, í síma 444 7000

Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, í síma 856 7108

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags, í síma 590 2200


[HUG#1912784]