2010-10-05 19:44:40 CEST

2010-10-05 19:45:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Tímabundin breyting á aðalmiðlarasamningnum.


Aðalmiðlarar og Íbúðalánasjóður hafa ákveðið að gera tímabundna breytingu á 3.
gr. samningsins, sem var undirritaður 16. júní 2010 og tók gildi þann 1. júlí
2010 í tengslum við útboð íbúðabréfa og um viðskiptavakt íbúðabréfa á
eftirmarkaði. 

Frá og með 5.október 2010 til 4. nóvember 2010 verður hámarksmunur kaup- og
sölutilboða fyrir HFF150224, HFF150434 og HFF150644 eftirfarandi: 

Flokkur	   Hámarksmunur 
HFF150224	  0,55%
HFF150434      0,70%
HFF150644	  0,85%

Breyting er gerð til að auðvelda viðskiptavökum að sinna vakt með framangreinda
flokka á eftirmarkaði. 

Nánari upplýsingar veitir Ívar Ragnarsson í síma 569-6990