2015-10-08 12:38:46 CEST

2015-10-08 12:39:47 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Fyrirtækjafréttir

Fjármál Reykjanesbæjar


Í tilkynningu þann 8. mars síðastliðinn tilkynnti Reykjanesbær um alvarlega
fjárhagsstöðu bæjarfélagsins. Jafnframt var tilkynnt um að bæjaryfirvöld ættu í
viðræðum við kröfuhafa um endurskipulagningu skuldbindinga bæjarfélagsins. 

Viðræðurnar standa enn yfir og taka mið af því að skuldaviðmið sveitarfélagsins
verði komið niður fyrir lögbundið hámark í árslok 2022. Þeir kröfuhafar sem
bæjarfélagið hefur átt í viðræðum við hafa veitt afslátt á greiðslum samhliða
viðræðunum. Eigi viðræðurnar að skila árangri er nauðsynlegt að samkomulag
náist við helstu kröfuhafa um verulega niðurfellingu skulda. Vinna við
endurskipulagningu bæjarins hefur áhrif á skuldbindingar stofnana og félaga
bæjarins, sbr. tilkynningar frá Reykjaneshöfn 2. október og fyrr í dag hinn 8.
október þar sem tilkynnt var um að bæjarráð hefði hafnað beiðni hafnarinnar um
fjármögnun. Reykjanesbær er samkvæmt lögum í ábyrgð fyrir skuldbindingum
Reykjaneshafnar. Aðkoma kröfuhafa Reykjaneshafnar, í formi endurskipulagningar
skulda, er forsenda samninga um fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar. 

Náist ekki samningar við kröfuhafa um fjárhagslega endurskipulagningu
bæjarfélagsins og stofnana þess verður samkvæmt sveitastjórnarlögum óskað eftir
því að bæjarfélaginu verði skipuð fjárhagsstjórn. 

Stefnt er að því að leggja fram tillögu að heildar endurskipulagningu fjárhags
Reykjanesbæjar og stofnana hans fyrir kröfuhafa á næstunni.