2015-04-15 11:02:53 CEST

2015-04-15 11:03:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Snæfellsbær - Ársreikningur

Ársreikningur Snæfellsbæjar 2014


Góð afkoma af rekstri Snæfellsbæjar árið 2014

Þriðjudaginn 14. apríl 2015 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2014 afgreiddur í
bæjarráð til fyrri umræðu í bæjarstjórn.  Eins og sveitarstjórnarlög kveða á
um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Fyrri
umræða um ársreikninginn var þriðjudaginn 14. apríl 2015 og síðari umræða
verður miðvikudaginn 6. maí n.k. 

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga.
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum en í B-hluta eru fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins og
eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar, sem eru: Félagsheimilið Klifi,
Félagsheimilið Röst, Veitustofnanir Snæfellsbæjar, Hafnarsjóður Snæfellsbæjar,
Húsnæðisnefnd Snæfellsbæjar, Leiguíbúðir með hlutareign og Dvalarheimilið
Jaðar. 


Rekstur Snæfellsbæjar góður

Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á árinu og var rekstrarniðurstaðan nokkuð betri
en áætlun gerði ráð fyrir. 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 1.907  millj. króna samkvæmt
samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir rekstrartekjum um 1.800 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um
1.497 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.418
millj. króna. 

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A-
og B-hluta var jákvæð að fjárhæð um 214 millj. króna en samkvæmt fjárhagsáætlun
var gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 77 millj. króna. Rekstrarafkoman varð
því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 137 millj. króna. 
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 127,8 millj. króna en
fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðiri afkomu upp á 34  millj. króna. Afkoma
A-hluta varð því betri sem nemur 82 millj. króna.  Eigið fé sveitarfélagsins í
árslok nam 2.605 millj. króna skv. efnahagsreikningi en þar af nam eigið fé
A-hluta 2.043 millj. króna. 

Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu um 907 milljónum króna en
starfsmannafjöldi sveitarfélagsins nam 139 stöðugildum í árslok. 

Veltufé frá rekstri var 200,5 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,05. 
Handbært frá rekstri var 204,8 millj. króna. 

Heildareignir bæjarsjóðs námu um 3.436 millj. króna og heildareignir
sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 4.379 millj. króna í árslok
2014. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.394 millj. króna og í samanteknum
ársreikningi um 1.774 millj. króna, og lækkuðu þar með milli ára um 39
milljónir.  Eigið fé bæjarsjóðs nam um 2.043 millj. króna og eigið fé í
samanteknum reikningsskilum nam um 2.605 millj. króna í árslok 2014. 
Eiginfjárhlutfall er 59,44% á á árinu 2014 en var 57,44 árið áður. 

Snæfellsbær fjárfesti á árinu fyrir 318,9 milljónir í varanlegum
rekstrarfjármunum og ný lán voru tekin að upphæð 59 milljónir.  Greidd voru
niður lán að fjárhæð 155,7 milljónir. 

Hlutfall reglulegra tekna af heildarskuldum og skuldbindingum er 84,62% hjá
sjóðum A-hluta, en var 87,62% árið 2013, og 86,35% í samanteknum ársreikningi
en var 90,62 árið 2013.  Skv. 64. gr. 2. málsgr. sveitarstjórnarlaga á þetta
hlutfall ekki að vera hærra en 150% 

Álagningarhlutfall útsvars var 14,52%. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam
0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55%. 

Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri, Kristinn Jónasson, í síma 433-6900, eða
á kristinn@snb.is 

Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Klettsbúð 4,
Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is.