2008-05-28 10:54:20 CEST

2008-05-28 10:55:20 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir

- Skuldabréfaútboð Marel Food Systems hf. - Viðbótarupplýsingar


Skuldabréfaútboði Marel Food Systems hf. sem fram fór dagana 22. og 23. maí
síðastliðinn er lokið. Seld voru skuldabréf að andvirði 6 milljarða króna (€ 52
milljónir). Auðkenni skuldabréfaflokksins er MARL 08 1 og er ISIN númer
bréfanna IS0000018083. Sérhver nafnverðseining er ISK 5.000.000 og var
útgáfudagur skuldabréfaflokksins þann 20. maí 2008. Vextir greiðast á gjalddaga
höfuðstóls sem er að liðnu einu ári. Engin hlunnindi eru tengd skuldabréfunum,
þau eru ekki tryggð með veðum og án ábyrgðar þriðja aðila. 

Fyrirhugað er að sækja um skráningu skuldabréfaflokksins í kauphöll Nasdaq OMX
Exchange Iceland. 

Verðbréfamiðlun Landsbanka Íslands hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna.