2010-08-30 19:59:33 CEST

2010-08-30 20:00:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Ársreikningur

Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar - júní 2010


Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar til júní 2010, var
staðfestur af stjórn stofnunarinnar 30. ágúst 2010. 

Tap tímabilsins nam 992 mkr.  Samkvæmt árshlutareikningnum er eigið fé
stofnunarinnar 1.138 mkr. 

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar
til júní 2010: 
•	Tap stofnunarinnar á tímabilinu nam 992 mkr.
•	Hreinar vaxtatekjur voru 259,2 mkr. eða 35,6% af vaxtatekjum, samanborið við
425,6 mkr. (41,8% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur á sama tímabili 2009. 
•	Rekstrartekjur námu 97,8 mkr.
•	Almenn rekstrargjöld námu 246,4 mkr.
•	Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreyting hlutafjár nam 1.102 mkr.
•	Eignir námu 19.458 mkr. og hafa lækkað um 4.257 mkr. frá áramótum.  Þar af
voru útlán og fullnustueignir 16.299 mkr. 
•	Skuldir námu 18.319 mkr. og hafa lækkað um  4.265 mkr. frá áramótum.
•	Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 374,5 mkr. 
•	Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er 5,18% en skal að
lágmarki vera 8% 

Um árshlutareikninginn
Tap tímabilsins skýrist fyrst og fremst af 1.053 mkr. framlagi í
afskriftarreikning útlána til að mæta fyrirsjáanlegum útlánatöpum og 118 mkr.
gengistapi. 

Hreinar vaxtatekjur stofnunarinnar námu 259,2 mkr. eða 35,6% af vaxtatekjum og
hafa lækkað lítillega í hlutfalli við heildar vaxtatekjur. 

Nýjar lánveitingar drógust saman á tímabilinu og námu 220 mkr. samanborið við
652 mkr. á sama tímabili 2009. 

Skuldir lækkuðu um 4.265 mkr. á tímabilinu.  Skýrist það af greiðslu á
skuldabréfaútgáfu stofnunarinnar frá 1998 (BYG98) sem var á gjalddaga í júní. 
Einnig hefur styrking krónunnar lækkað erlendar skuldir. 

Ríkissjóður greiddi Byggðastofnun eiginfjárframlag upp á 3.600 mkr. á
tímabilinu sem samþykkt var á Alþingi í Fjáraukalögum 2009 og Fjárlögum 2010. 
Eiginfjárframlagið var greitt í formi ríkisskuldabréfaflokksins RIKH18.  Var
eiginfjárframlagið að hluta nýtt til greiðslu á ofangreindri skuldabréfaútgáfu. 

Ekki hafa verið tekin ný lán eða gefin út ný skuldabréf á tímabilinu. 
Stofnunin hefur 1.958 mkr. í handbært fé og ríkisskuldabréfum til að standa við
skuldbindingar sínar. 

Horfur
Í lok tímabilsins stóðst stofnunin ekki eiginfjárkröfur sem gerðar eru til
fjármálafyrirtækja.  Það leiðir til þess að ríkissjóður verður sem eigandi
stofnunarinnar að taka til þess afstöðu á síðari hluta ársins hvort halda beri
starfseminni áfram í óbreyttri mynd, og þar með nýju eigin fé. 

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í
síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is