|
|||
2015-01-26 10:24:23 CET 2015-01-26 10:25:23 CET REGULATED INFORMATION HB Grandi hf. - FyrirtækjafréttirHB Grandi hefur samið um vinnslu- og lestarbúnað í nýja ísfisktogaraHB Grandi hefur samið við Skagann á Akranesi og 3X Technologies á Ísafirði um að setja upp nýjan vinnslu- og lestarbúnað í Engey RE, Akurey AK og Viðey RE, nýja ísfisktogara sem HB Grandi fær afhenta á árunum 2016 og 2017. Samningarnir hljóða samtals upp á um 1.190 milljónir króna og mun vinna við uppsetninguna fara fram á Akranesi. Um er að ræða tvo samninga, annars vegar um búnað á vinnsludekki og hins vegar um sjálfvirkt flutningakerfi kara. Með sjálfvirka flutningakerfinu þarf ekki lengur að vinna við að setja fisk í kör og ísa hann í lest togaranna. Lest skipanna verður því mannlaus. Flutningskerfið mun bæta vinnuaðstöðu sjómanna verulega, tryggja aukin gæði og lækka rekstrarkostnað. Búnaðurinn á vinnsludekki mun einnig bæta vinnuaðstöðu og tryggja betri meðhöndlun fisks, lifrar, hrogna og slógs, afkastamikla blóðgun og slægingu og betri kælingu. Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu HB Granda: www.hbgrandi.is |
|||
|