|
|||
2013-10-16 11:04:00 CEST 2013-10-16 11:05:01 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirReitun bætir lánshæfismat OrkuveitunnarReykjavík, 2013-10-16 11:04 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Matsfyrirtækið Reitun hefur breytt horfum í lánshæfismati á Orkuveitu Reykjavíkur úr stöðugum í jákvæðar. Helstu ástæður þess eru sterkur rekstur og hversu vel hefur gengið að fylgja eftir Planinu - aðgerðaáætlun Orkuveitunnar og eigenda. Heildareinkunn Reitunar er áfram B+. Orkuveitan þarf að styrkja lausafjárstöðuna, draga úr markaðsáhættu og borga niður skuldir til að sú einkunn hækki, að því er kemur fram í viðhengdu lánshæfismati. Fyrirtækið vinnur að styrkingu lausafjár meðal annars með sölu eigna, áformað er að greiða skuldir Orkuveitunnar niður um rúmlega 80 milljarða króna samkvæmt nýsamþykktum fjárhagsáætlunum og stöðugt er unnið að bættum vörnum gegn hugsanlegri óhagstæðri þróun ytri þátta rekstursins. Úr samantekt lánshæfismats Reitunar: Sterkur rekstur og dregið hefur úr markaðsáhættu Vel hefur gengið að fylgja eftir aðgerðaráætlun Orkuveitunnar sem lagt var af stað með árið 2011. Gjaldskrá er nú vísitölutengd, dregið hefur úr rekstrarkostnaði og EBITDA framlegð félagsins er góð. Þröng lausafjárstaða dregur úr sveigjanleika Orkuveitunnar til að mæta áföllum en félagið er viðkvæmt fyrir ytri þáttum og markaðsáhætta er töluverð. Gerðir hafa verið vaxtaskiptasamningar til að draga úr vaxtaáhættu og er Orkuveitan vel varin fyrir vaxtabreytingum næstu árin. Erlendar skuldir félagsins eru 80% af heildarskuldum þess og gengisáhætta er stærsti áhættuþáttur þess. Unnið er að niðurgreiðslu skulda en félagið er þó enn mikið skuldsett. Sjóðstreymi Orkuveitunnar mun samkvæmt áætlun standa undir afborgunum og vöxtum skuldbindinga á næstu árum. Ef heldur áfram sem horfir er það mat Reitunar að félagið verði orðið fjárhagslega sterkt innan fárra ára. |
|||
|