|
|||
2008-02-13 23:37:01 CET 2008-02-13 23:38:01 CET REGULATED INFORMATION FL GROUP hf. - FyrirtækjafréttirCORRECTION: FL Group selur hlut sinn í Geysi Green EnergyLeiðrétting: Ítarlegri upplýsingar um kaupendur FL Group hefur selt 43,1% eignarhlut sinn í Geysir Green Energy til nýstofnaðs fjárfestingasjóðs, Glacier Renewable Energy Fund, VGK Invest og Renewable Energy Resources. Söluverðið er 10,5 milljarðar króna sem samsvarar til bókfærðs verðs Geysi Green Energy í ársreikningi FL Group um sl. áramót og hefur því óveruleg áhrif á afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2008. FL Group fær greitt fyrir bréfin í Geysi með reiðufé, skráðum verðbréfum og eignarhluti í Glacier Renewable Energy. Glacier Renewable Energy er grænn fjárfestingasjóður sem rekin er af Glitni sjóðum hf. og hefur að markmið að fjárfesta í verkefnum sem tengjast sjálfbærum orkuverkefnum. Eignarhlutur FL Group í sjóðnum er um 4,5 milljarðar króna. Geysir Green Energy er fjárfestingafélag á sviði umhverfisvænnar orku sem FL Group stofnaði ásamt Glitni banka og VGK Hönnun í ársbyrjun 2007. Geysir fjárfestir í orkuverkefnum og félögum sem starfa að nýtingu jarðvarma til orkuvinnslu víða um heim. Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group sagði: „Sala hlutar okkar í Geysi er í samræmi við endurskipulagningu á eignasafni okkar hvað varðar fjárfestingar sem falla utan kjarnafjárfestinga. FL Group hefur verið leiðandi í uppbyggingu Geysis sem náð hefur miklum árangri á skömmum tíma og skilað FL Group góðri ávöxtun. Framtíð Geysis er björt og við treystum Glitni banka og Atorku Group, sem búa að sérhæfðri þekkingu á sviði umhverfisvænnar orku, fyllilega fyrir framtíð félagsins. FL Group mun áfram hafa hagsmuni af Geysi Green Energy sem kjölfestufjárfestir í Glitni banka. Frekari upplýsingar veitir: Samskiptasvið FL Group Júlíus Þorfinnsson Sími: 591 4400 / 896 6612 Póstfang: julius@flgroup.is Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu FL Group, www.flgroup.is. Um FL Group FL Group er alþjóðlegt fjárfestingafélag með áherslu á þrjú fjárfestingasvið, FIG, Private Equity og Capital Markets. FIG hefur umsjón með fjárfestingum félagsins í fjármálafyrirtækjum og tryggingafélögum. Private Equity heldur utan um óskráðar eignir ásamt skráðum eignum sem falla að fjárfestingarstefnu félagsins. Capital markets svið félagsins hefur umsjón með markaðsviðskiptum sem lúta að skammtíma fjárfestingum sem og framkvæmd afleiðu- og verðbréfaviðskipta tengdum eignasafni félagsins. Kjarnafjárfestingar FL Group eru m.a. í Glitni banka, Tryggingamiðstöðinni og Landic Property. Höfuðstöðvar FL Group eru í Reykjavík en félagið er einnig með skrifstofur í Lundúnum. FL Group fjárfestir í félögum um allan heim en leggur sérstaka áherslu á fjárfestingar í Evrópu. FL Group er skráð á OMX Nordic Exchange í Reykjavík (OMX: FL) og hluthafar félagsins eru rúmlega 4.000 talsins. |
|||
|