|
|||
![]() |
|||
2016-06-16 18:44:10 CEST 2016-06-16 18:44:10 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirÚtboð OR á skuldabréfum og víxlum 23. júníReykjavík, 2016-06-16 18:43 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Fimmtudaginn 23. júní 2016 verða boðnir til sölu víxlar til 9 mánaða fyrir allt að 3 milljarða króna í nýjum flokki Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og skuldabréf fyrir allt að 3,5 milljarða króna í tveimur flokkum OR, OR090524 og OR090546, sem eru verðtryggðir með jöfnum greiðslum til 8 og 30 ára. Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf og víxlar verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður í hverjum flokki, en OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega næsta virka dag eftir útboð með fyrirvara um staðfestingu stjórnar útgefanda 27. júní næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf., í síma 444-7337 eða netfanginu verdbrefamidlun@arionbanki.is Brynja Kolbrún Pétursdóttir forstöðumaður Fjárstýringar og greininga OR, í síma 516-6100 eða netfanginu brynja.kolbrun.petursdottir@or.is |
|||
|