|
|||
2014-03-03 16:05:57 CET 2014-03-03 16:06:28 CET SÄÄNNELTY TIETO Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðirÍslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á útistandandi flokkum verðtryggðra sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á NASDAQ OMX Iceland. Flokkurinn ISLA CBI 19 var stækkaður um 1.070.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,20% en ISLA CBI 24 um 264.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,24%. Heildarstærð ISLA CBI 19 útgáfunnar er nú orðin 7,70 ma. kr. og ISLA CBI 24 er orðin 8,73 ma. kr. Alls hefur Íslandsbanki gefið út fimm flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að upphæð 25,92 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011. Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Heildareftirspurnin í útboðinu var 1,69 ma. kr., en 79% tilboða var tekið. Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland þann 7. mars næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréf Íslandsbanka er á vegum MP banka. Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum, sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187 / 844 3187. * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925. [HUG#1765956] |
|||
|